
DULARFULLT: The Monster with 21 Faces
Published: August 29, 2026
Duration: 53:51
Í þessum þætti förum við til Japans á níunda áratugnum þar sem eitt furðulegasta sakamál landsins hófst. Hópur sem kallaði sig The Monster With 21 Faces byrjaði að senda dularfull bréf til lögreglu, fjölmiðla og stórra fyrirtækja. Í bréfunum var gert grín að yfirvöldum, og gefið í skyn að sælgæti í verslunum væri eitrað. 🍫📮
Það sem fylgdi í kjölfarið var röð atburða sem hljóma næstum eins og kvikmynd: mannrán, hótanir, dulnefni, eitraðar vörur í hillum verslana og lögregla sem virtist alltaf vera einu skrefi á eftir. 🕵️...